Verkefna og rannsóknarstyrkur SUMS
Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir tvo styrki, hvor að verðgildi allt að 250 þúsund krónum.
Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmast markmiðum SUMS.
Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig til að kynna verkefnin /rannsóknirnar á ráðstefnu eða aðalfundi SUMS.
Styrkir eru ekki veittir til ráðstefnuferða nema ef viðkomandi fer til að kynna verkefni í formi erindis eða veggspjalds.
Í umsókn þarf að koma fram:
- Nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Sími
- Staða
- Vinnustaður
- Menntunargráða
- Heiti verkefnis
- Stutt lýsing verkefnis / rannsóknar (markmið, aðferðir, gildi fyrir sárameðferð á Íslandi)
- Samstarfsaðilar
- Áætluð lok verkefnis / rannsóknar
- Kostnaðaráætlun
Fylgiskjöl: Leyfi frá persónuvernd og siðanefnd þarf að liggja fyrir þar sem það á við.
Umsóknir skal senda sem fylgiskjal (pdf form) á sums2004@gmail.com
Umsóknarfrestur er til 22. Október 2023.
Styrkþegar verða kynntir á haustráðstefnu SUMS 3. nóvember.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á sums2004@gmail.com