Samtök um sárameðferð (SUMS) eru þverfagleg samtök fagfólks sem koma að mati og meðferð sára á Íslandi. Samtökin voru stofnuð 2004 og hafa verið í stöðugum vexti og þróun síðan. Meðlimir eru nú vel á þriðja hundrað og eru samtökin því einn stærsti þverfaglegi vettvangur heilbrigðisstarfsfólks á landinu. Markmið félagsins eru meðal annars að stuðla að aukinni þekkingu á sárgræðslu og sárameðferð, stuðla að samvinnu og samræmingu í meðferð sára í íslensku heilbrigðiskerfi, ásamt því að efla samskipti við sambærileg félög innan lands sem utan.
SUMS skipuleggur í það minnsta tvo fundi eða ráðstefnur árlega, sem eru nú helsti vettvangur fagfólks um sár og sárameðferð á Íslandi. Samtökin leggja metnað sinn í að stuðla að auknu vísindastarfi og rannsóknum á sviði sárameðferðar á Íslandi. Verkefnastyrkir SUMS eru auglýstir og veittir árlega viðeigandi verkefnum á sviði sárameðferðar. SUMS er aðili að og virkur þátttakandi í evrópska fagfélaginu EWMA (European Wound Management Association).