Við þökkum kærlega fyrir samveruna á síðasta ársfundi. Sérstakar þakkir fá fyrirlesarar, fundarstjóri og styrktaraðilar. Hér eru nokkrar myndir af deginum, og af nýrri og þáverandi stjórn samtakanna.

Stjórn SUMS boðar til ársfundar SUMS sem verður haldinn miðvikudaginn 13. mars kl 16:15 í Hringsal LSH. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður boðið upp á tvö áhugaverð fræðsluerindi og styrktaraðilar munu kynna vörur sínar í kaffihléi. Á ársfundinum verður lögð fram lagabreyting sem félagsmenn hafa fengið sent í tölvupósti. Hlökkum til að hitta ykkur!

Mjög áhugavert námskeið í þrýstingssáravörnum. Mælum svo sannarlega með. Sjá skráningarsíðu og prógramm.

Stjórn sárasamtakanna óskar eftir framboðum í stjórn fyrir næsta aðalfund. Það eru núna tvær lausar stöður og hvetjum við ykkur til að bjóða ykkur fram. Lofum frábærri teymisvinnu og reynslu í að efla sárameðferð á Íslandi. Framboð þurfa að berast fyrir mánudaginn 26.febrúar. Vinsamlegast sendið okkur póst á sums2004@gmail.com. Endurnýjun stjórnar fer svo fram á […]

Hér eru nokkrar myndir frá ráðstefnunni okkar núna í nóv Takk allir sem komu að henni, fyrirlesarar, styrktaraðilar, fundarstjóri og allir gestir. Án ykkar væri þetta ekki hægt.

Við auglýsum glæsilegt námskeið í hjúkrunarfræðilegri meðferð krabbameinssára. Það verður haldið í sal Félags Íslenskra Hjúkrunarfræðinga mánudaginn 20.nóvember frá kl. 13:00-16:00. Við erum svo heppin að fá erlendan gest Betinu Lund-Nielsen sérfræðing í hjúkrun sjúklinga með krabbameinssár og því er námskeiðið á ensku. Það eru aðeins 35 pláss þannig að fyrstur kemur fyrstur fær. Greiðsla […]

Búið er að opna fyrir skráningu á haustráðstefnu SUMS sem verður haldinn föstudaginn 3. nóvember. Skráningarsíðan er hér: Skráning á ráðstefnu SUMS 2023.

Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir tvo styrki, hvor að verðgildi allt að 250 þúsund krónum. Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmast markmiðum SUMS.  Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig til að kynna verkefnin /rannsóknirnar á ráðstefnu eða aðalfundi SUMS.  […]

Stjórn SUMS boðar til ársfundar SUMS sem verður haldinn miðvikudaginn 15. mars kl 16:15 í Hringsal. Boðið verður upp á tvö áhugaverð erindi um bruna og brunameðferðir. Allir velkomnir!

Minnum á ráðstefnu Evrópsku Þrýstingssárasamtakanna, EPUAP sem verður 13-15.sept. Tekið er við úrdráttum til 16.apríl.

Minnum á glæsilega ráðstefnu EWMA, evrópsku sárasamtakanna sem verður 3-5 maí í Mílanó. Ódýrara ráðstefnugjald er til 29.mars þannig að um að gera að draga það ekki að skrá sig. https://ewma.org/ewma-conferences/2023

Aðalfundur sárasamtakanna verður miðvikudaginn 15.mars kl.16:15 í Hringsal Landspítala. Hefðbundin aðalfundarstörf verða ásamt tveimur erindum. Dagskráin er í mótun en endilega takið tímann frá

Við þökkum kærlega fyrir frábæra ráðstefnu. Án fyrirlesara, gesta og sérlega styrktaraðila hefði þessi frábæri dagur ekki geta orðið. Hlökkum til að endurtaka leikinn föstudaginn 3.nóvember 2023, allir að taka daginn frá 😉

Jæja, þá er loksins skráningarsíðan okkar komin í gagnið. Allir geta núna skráð sig á ráðstefnuna 11.nóvember 2022. Því miður er dagskráin ekki alveg tilbúin, verið er að staðfesta síðustu fyrirlesarana og hún ætti að koma í ljós fyrir vikulok. Erindin sem verða eru þó alls ekki af verri endanum og dagskráin mjög efnileg. Dæmi […]

Um er að ræða verkefna- og rannsóknarstyrk SUMS. Tveir styrkir, hvor allt að 200 þúsund krónur.Við hvetjum alla sem eru að vinna að verkefnum eða rannsóknum á sárameðferð að sækja um.

Dagur þrýstingssáravarna í ár er 17.nóvember. Allir geta haldið upp á daginn á sinni starfsstöð. Hér er síða dagsins og ýmsar upplýsingar.

Stjórn SUMS auglýsir verkefna- og rannsóknarstyrk SUMS. Tveir styrkir eru auglýstir, hvor allt að 200 þúsund krónur.Við hvetjum alla sem eru að vinna að verkefnum eða rannsóknum á sárameðferð að sækja um. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk.

Nýjasta útgáfan af tímaritinu Journal of Wound Management er með áherslur á húðrifur. Eitthvað sem verður á vegi flestra sama hvar þeir vinna.

Stjórn Sárasamtakanna vill minna á að reikningur fyrir árgjaldi félagsmanna er kominn í heimabankann en kann að finnast undir valgreiðslur.

Ársfundur/ráðstefna Evrópsku sárasamtakanna er núna handan við hornið. Alltaf gaman að fá sér aukna þekkingu á sviði sárameðferðar. Mælum með https://epuap2022.org/

Þá er komin tímasetning á ráðstefnuna okkar sem verður föstudaginn 11. nóvember næstkomandi. Geggjuð dagskrá allan daginn og góðar veitingar. Allir að taka daginn frá 😉

Ársfundur SUMS verður haldinn miðvikudaginn 11. maí kl 16.15 í Hringsal. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða tvö áhugaverð erindi. Andri Már Þórarinsson lýtalæknir fjallar um sinus pil og Magali B Mouy hjúkrunarfræðingur fjallar um súrefnismeðferð. Í kaffihléi verða vörukynningar frá styrktaraðilum. Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur.

Það styttist í ráðstefnu evrópsku sárasamtakanna. Frábær vettvangur til að dýpka þekkingu sína og auka tengslanetið sitt við fólk með sama áhugasvið. Það er ódýrara skráningargjald til 28. apríl. Allir að skrá sig og mæta. Sjá frekari upplýsingar hjá heimasíðu samtakanna, https://ewma.org/ewma-conferences/2022

Í dag er alþjóðadagur þrýstingssáravarna. Höldum daginn hátíðlegan. Munum eftir HAMUR verklaginu og aðstoðum alla sem eiga í erfiðleikum með hreyfingu að hagræða sér. Frekari upplýsingar má finna hjá samtökum Evrópsku þrýstingssáravarna https://www.epuap.org/

Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir þrjá styrki, hver að verðgildi allt að 200 þúsund krónum.Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmast markmiðum SUMS.Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig til að kynna verkefnin /rannsóknirnar á ráðstefnu eða aðalfundi SUMS.Styrkir eru ekki […]

Haustráðstefna SUMS verður föstudaginn 5. nóvember á Hótel Hilton. Þemað í ár er óvenjuleg sár. Dagskráin er tilbúin og mikil tilhlökkun geta haldið ráðstefnu eftir svo langa bið. SKRÁNING 08:00-08:30       Skráning og afhending gagna 08:30-08:35       Setning ráðstefnu 08:35-09:05       Atypisk sár- Baldur Tumi Baldursson húðsjúkdómalæknir 09:05-09:35       Sinafellsbólga með drepi og gasdrep (Necrotising fasciitis  og […]

Ársfundur og tveir áhugaverðir fyrirlestrar um sár og sárameðferð Á morgun fimmtudaginn 20. maí verða samtök um sárameðferð SUMS með sinn árlega aðalfund í Hringsal kl 16:15. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf verða tveir áhugaverðir fyrirlestar. Gunnar Auðólfsson lýtalæknir verður með fyrirlestur um lokaða áverka og svo mun Berglind Chu sérfræðingur í hjúkrun vera með fyrirlestur um […]

Ársfundur SUMS verður miðvikudaginn 27. maí kl 16:15 í Hringsal. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða styrktaraðilar SUMS með stuttar kynningar á sínum vörum frá pontu. Allir velkomnir.

EWMA hefur ákveðið að fresta ráðstefnu sinni sem var fyrirhuguð í maí til 18. nóvember vegna COVID-19 faraldursins. Sjá nánar á heimasíðu EWMA 

Ársfundi SUMS sem átti að vera í dag kl 16:15 í Hringsal hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ný tímasetning auglýst síðar.

Stjórn SUMS boðar til ársfundar miðvikudaginn 11. mars kl 16:15 í Hringsal á LSH við Hringbraut. Allir velkomnir Dagskrá: 16:15 Aðalfundarstörf 16:40 Kaffi og vörukynningar styrktaraðila 17:10 Reynsla af notkun Kerecis Omega 3 Wound á heilsugæslu HSS -Sveinbjörg S. Ólafsdóttir deildarstjóri á hjúkrunarmóttöku HSS 17:30 Meðferð með Kerecis Omega 3- nýjungar í meðferð sára með […]

Nýjasta tölublað EWMA er komið út. Í þessu tímariti er lögð sérstök áhersla á sár og sárameðferð hjá sjúklingum með krabbamein. Að auki eru vísindagreinar og fréttir frá EWMA og samstarfsfélögum. Tímaritið má lesa hér 

16. haustráðstefnu SUMS er nú lokið.  Þemað í ár var langvinn sár, ráðstefnan var vel sótt og við fengum að heyra mörg áhugaverð erindi. Anna Steinsen hjá KVAN sló svo á létta strengi í lok dags. Styrktaraðilar sáum um áhugaverðar kynningar á sárameðferðarvörum í matar og kaffihléi. Tveir rannsóknar og verkefnastyrkir voru veittir. Það voru […]

Dagskrá: 08:00-08:30         Skráning og afhending gagna 08:30-08:35         Setning ráðstefnu 08:35-08:55         Sárin sem ekki gróa; Ingibjörg Guðmundsdóttir; hjúkrunarfræðingur 08:55-09:20         Hvað ef sárið grær? Lilja Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur 09:20-09:40        Sáranámskeið í Háskólanum í Suður Noregi: Elva Rún Rúnarsdóttir og Sigþór Jens Jónsson, hjúkrunarfræðingar í meistaranámi segja frá reynslu sinni 09:50-10:20        Kaffi og […]

  Verkefna- og rannsóknarstyrkur SUMS   Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir þrjá styrki, hver að verðgildi allt að 200 þúsund krónum. Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmast markmiðum SUMS. Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig til að kynna verkefnin […]

Haustráðstefna SUMS 2019 verður á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 11. október frá kl 8-16. Takið daginn frá.

Ársfundur SUMS var haldinn miðvikudaginn 20. mars sl. Fundurinn var vel sóttur og auk hefðbundinna aðalfundarstarfa voru tvö fróðleg fræðsluerindi. Lilja Gunnardóttir sagði frá flóknu sáratilfelli úr heilsugæslunni og Berglind Chu, Guðný Einarsdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir sögðu frá námskeiði um þrýstingssáravarnir í Dublin sem þær sóttu fyrr í mánuðinum. Ný stjórn SUMS var kosin, þrír […]

Ársfundur SUMS 2019 verður haldinn miðvikudag 20. mars 2019, kl 16.15 í Hringssal. Dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og tvö fræðsluerindi, sjá hér. Allir velkomnir

Verkefna- og rannsóknarstyrkur SUMS Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir þrjá styrki, hver að verðgildi allt að 200 þúsund krónum. Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmast markmiðum SUMS. Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig til að kynna verkefnin /rannsóknirnar á […]

Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi (hana má einnig sjá á .pdf formi hér): 07:50 – 08:20 Skráning og afhending ráðstefnugagna 08:20 – 08:30 Setning og ávarp Tómas Þór Ágústsson, formaður SUMS 08:30– 09:00 Þrýstingssáravarnir: Gæðarannsókn og ný aðgerðaráætlun Berglind G. Chu, hjúkrunarfræðingur Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunfræðingur 09:00 – 09:30 Incontinence associated dermatitis Prof. Dr . Dimitri Beeckman […]

Stjórn SUMS boðar til ársfundar 21. mars kl 16:15 í Hringsal Dagskrá: 16.15 Aðalfundarstörf 16.45 Kaffi og vörusýning styrktaraðila 17.15 Necrotizing fasciitis – hvað er það? Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúkdómalæknir 17.35 Smáforrit og fræsðluefni fyrir sárameðferð í starfi. Guðný Einarsdóttir, sárahjúkrunarfræðingur

Dagskrá haustráðstefnu SUMS sem verður 13. okt er hér Lokað verður fyrir skráningu á netinu kl 13 þann 12. okt. Hægt verður að skrá sig á staðnum þann 13.

Ný stjórn SUMS var kosin á síðasta ársfundi. Tveir stjórnarmenn luku tveggja ára tímabili í stjórn, þær Linda Björnsdóttir gjaldkeri og Lilja Þyrí Björnsdóttir varamaður. Þær gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir störf sín fyrir SUMS. Elín Laxdal æðaskurðlæknir á LSH og Þórgunnur Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu […]

Ný stjórn SUMS var kosin á síðasta ársfundi. Tveir stjórnarmenn luku tveggja ára tímabili í stjórn, þær Linda Björnsdóttir gjaldkeri og Lilja Þyrí Björnsdóttir varamaður. Þær gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir störf sín fyrir SUMS. Elín Laxdal æðaskurðlæknir á LSH og Þórgunnur Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu […]

Dagskrá: 16.15 – 16.45Aðalfundarstörf16.45 – 17.15Kaffi og vörusýning styrktaraðila17.15 – 17.35 Fylgikvillar fegrunaraðgerða. Halla Fróðadóttir, lýtalæknir flytur fræðsluerindi17.35 – 17.55Sár á Austurlandi. Guðný Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS kynnir meistaraverkefni sitt.Allir velkomnir

Dagskrá: 16.15 – 16.45 Aðalfundarstörf 16.45 – 17.15 Kaffi og vörusýning styrktaraðila 17.15 – 17.35 Fylgikvillar fegrunaraðgerða. Halla Fróðadóttir, lýtalæknir flytur fræðsluerindi 17.35 – 17.55 Sár á Austurlandi. Guðný Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS kynnir meistaraverkefni sitt. Allir velkomnir

Næsta haustráðstefna SUMS verður á Hilton Hótel föstudaginn 13. október

**Verkefna- og rannsóknarstyrkur SUMS**Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir þrjá styrki, hver að verðgildi allt að 200 þúsund krónum.Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð áÍslandi og samræmast markmiðum SUMS.Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig til að kynnaverkefnin /rannsóknirnar á ráðstefnu eða aðalfundi SUMS.Styrkir eru […]

Haustráðstefna SUMS verður föstudaginn 21. okt á Hilton Reykjavík Nordika. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er langvinn sár og fótamein sykursjúkra. Dagskráin er [hér ](https://icelandtravel.artegis.com/lw/CustomContent?T=1&custom=1571&navid=15496&event=12140) Opnað hefur verið fyrir skráningu og við hvetjum alla til að skrá sig. [Skráning á ráðstefnuna](https://icelandtravel.artegis.com/lw/Registration?formName=regFormTemplate28057&custom=1571&navid=15492&event=12140)

Ný stjórn SUMS var kosin á síðasta aðalfundi. Tveir stjórnarmenn luku tveggja ára tímabili í stjórn, þær Jóna Kristjánsdóttir og Guðbjörg Pálsdóttir. Jóna gaf ekki kost á sér til endurkjörs en Jóna hefur verið í stjórn samtakanna frá upphafi og eru henni færðar bestu þakkir fyrir störf sín. Einar Þór Þórarinsson, heimilislæknir gaf kost á […]

Ársfundur SUMS verður haldinn 16. mars n.k.í Hringsal Landspítala við Hringbraut.Fundurinn hefst kl. 16.10 Sjá nánar í dagskrá. Aðalfundarboð

Rannsókna / verkefnastyrkir SUMS eru lausir til umsóknar. Um er að ræða þrjá styrki að upphæð allt að 200 þús. kr. Styrkirnir eru veittir verkefni eða rannsókn sem stuðlar að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS. Umsóknarfrestur er til 2. mars n.k. Umsóknir skal senda sem fylgiskjal (pdf skjal) á sums2004@gmail.com Styrkþegar verða […]

Nú er fjöldi skráðra félaga í SUMS kominn í 200. Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun samtakanna sem við höfum náð slíkum fjölda.

**Heimsþing sárasamtaka** (World Union of Wound Healing Societies)verður haldið í Flórens Ítalíu í 25. – 29. september 2016Allar nánari upplýsingar fást á heimasíðu samtakanna: www.wuwhs2016.comFrestur til að skila úrdráttum er 23. desember 2015

**Lokað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnuna**Hægt er að mæta snemma í fyrramálið á Hilton Reykjavík Nordica (um kl. 07:50) og skrá sig þar.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnuna 16. október n.k.Skráningarhnappur er á forsíðu, hægra megin á síðunni. Dagskrá ráðstefnu 2015

Ráðstefnan verður haldin 16. október n.k. á Hilton Reykjavík Nordica.Nánar auglýst síðar.Takið daginn frá !

European Academy of Dermatology and Venereology stendur fyrir ráðstefnu sérstaklega ætluð læknum.Ráðstefnan er haldin í Sviss 23. – 25. október 2015.Upplýsinga og skráningarsíða:www.123contactform.com/form-1470481/2015-EADV-Specialist-Course-Wound-Care

Myndböndin okkar um Doppler mælingar og Þrýstingsumbúðir og fótasár komin á netið.Í Doppler myndbandinu sýnir Lilja Þyri Björnsdóttir okkur hvernig nota á Doppler þrýstingsmæli til að meta blóðflæði í fæti.https://youtu.be/YLV8u6afAFMÍ þrýstingsumbúða myndbandinu sýnir Guðbjörg Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur hvernig leggja skal þrýstingsumbúðir með stutt-strekkjanlegum bindum á fótasár.https://youtu.be/a2SR6l0tLgY

Nýjasta tímarit EWMA Journal er komið út.Smellið á tengilinn til að ná í blaðið.http://ewma.org/ongoing/Journal/EWMA_J_1501_2015_web.pdf

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, skipti stjórn SUMS með sér verkum,Guðbjörg Pálsdóttir formaður,Tómas Þór Ágústsson varaformaður,Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri,Linda Björnsdóttir ritari,og Ingibjörg Guðmunsdóttir meðstjórnandi.Varamenn:Iris Hansen,Lilja Þyri Björnsdóttirhttp://sums.is/boardÚr stjórn fóru þær: Ína Kolbrún Ögmundsdóttir og Vilborg Hafsteinsdóttir. Færum við þeim bestu þakkir fyrir frábær störf í þágu samtakanna á liðnum árum.Skoðunarmenn reikninga eru: Ásta St. Thoroddsen og […]

Guðbjörg Pálsdóttir formaður fór yfir nýliðið ár sem var sögulegt að þvi leyti að sárasamtökin urðu 10 ára á árinu. Á ráðstefnunni 17. október ’14 var metþátttaka en um 170 þátttakendur sóttu ráðstefnuna.Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri fór yfir reikninga samtakanna. Hagnaður varð hjá samtökunum á síðasta ári.Veittir voru tveir rannsókna/verkefnastyrkir, 200.000 kr. hvor. Umsækjendur voru tveir […]

Ársfundur SUMS verður haldinn 9. mars kl. 16.15 í Hringsal Landspítala við Hringbraut.Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða flutt tvö fræðsluerindi. Aðalfundarboð Sáralæknir frá USA

Rannsókna / verkefnastyrkir SUMS eru lausir til umsóknar. Um er að ræða tvo styrki að upphæð allt að 200 þús. kr.Styrkirnir eru veittir verkefni eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS. Umsækjendur þurfa að vera meðlimir í samtökunum og skuldbinda sig auk þess til að kynna verkefnin / rannsóknirnar […]

Invitation to the 18th Annual Meeting of the European Pressure Ulcer Advisory Panel (EPUAP 2015)It is a pleasure to invite you to participate in the 18th Annual Meeting of the European Pressure Ulcer Advisory Panel (EPUAP 2015), which will be held 16-18 September at Ghent University, Ghent, Belgium.The overall theme of the conference is Putting […]

Í dag eru Samtök um sárameðferð á Íslandi 10 ára.Samtökin voru stofnuð að loknu málþingi sem haldið var á Hótel Sögu 2004.Alls mættu 130 manns á málþingið og 80 manns gerðust stofnfélagar.myndir frá 10 ára afmælisráðstefnunni:https://www.facebook.com/media/set/?set=a.779878912074172.1073741825.112085882186815&type=3

17. október s.l. héldu samtökin upp á 10 ára afmæli sitt með veglegri ráðstefnu.163 ráðstefnugestir voru mættir til að fagna þessum áfanga, hlýða á fjölbreytta fyrirlestra og skoða hvað styrktaraðilar höfðu upp á að bjóða.Bryddað var upp á tveimur nýjungum á þessari ráðstefnu:Veggspjaldasýning með ellefu veggspjöldum, þar sem fjallað var um rannsóknir/verkefni er tengdust sárameðferð. […]

Hér koma fyrstu drög að dagskrá SUMS fyrir ráðstefnuna 2014.Fullbúin dagskrá verður send út um leið og hún er tilbúin. Drög að dagskrá

ISPeW is the leading international organization dedicated to the diagnosis and management of acute and chronic wounds of all types in pediatric patients, from preterm and newborn infants to young adults. The presentations will cover a wide selection of wound-related topics that will be discussed in an open forum format by internationally recognized speakers and […]

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, skipti stjórn SUMS með sér verkum:Guðbjörg Pálsdóttir formaður,Ína Kolbrún Ögmundsdóttir varaformaður,Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri,Vilborg Hafsteinsdóttir ritari,Már Kristjánsson meðstjórnandi,Lilja Þyri Björnsdóttir og Íris Hansen varamenn.Iris Hansen er ný í stjórn SUMS og bjóðum við hana velkomna til starfa fyrir sárasamtökin.

The overall theme of the conference is Pressure Ulcers from Birth to Death: Prevention, Treatment and Rehabilitation. The programme will include key lectures, free paper sessions, symposia, workshops and poster session. Pressure ulcer in children, young persons with neurological disorders and spinal cord injuries, in patients after surgery, in the elderly and in palliative care […]

Ársfundur samtakanna var í gær og mættu 46 manns á fundinn sem telst mjög góð mæting.Byrjað var á hefðbundnum aðalfundarstörfum. Vilborg Hafsteinsdóttir ritari stýrði fundi.Guðbjörg Pálsdóttir formaður flutti tölu um starfsemi samtakanna á liðnu ári, Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri fór yfir endurskoðaða reikninga félagsins. Engar lagabreytingar komu fram. Guðbjörg og Jóna luku setu í stjórn SUMS […]

Miðvikudaginn 19. mars n.k. verður Ársfundur og fræðslufundur SUMS haldinn í Hringsal Landspítala við Hringbraut.Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða flutt tvö fræðsluerindi, Tómas Þór Ágústsson innkirtla- og efnaskiptalæknir fjallar um sykursýkissár og og kynnt verður tilfelli – sykursýkissár. Bergþóra Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur tekið saman í samráði við Guðbjörgu Pálsdóttur sérfræðing í hjúkrun. Ársfundur – dagskrá

Stjórn Samtaka um sárameðferð (SUMS) auglýsir tvo styrki að verðgildi 200 þúsund krónur hvor.Styrkirnir eru veittir verkefni eða rannsókn sem stuðlar að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS.Umsóknarfrestur er til 28. febrúar n.k. Rannsóknarstyrkur

Fimmtudagurinn 21. nóvember 2013 er tileinkaður þrýstingssáravörnum.Hvetjum alla til þátttöku með umræðu og aðgerðum á sínum vinnustað.Er þinn sjúklingur í áhættu? Hvað getur þú gert?* skoðað og metið ástand húðar* metið áhættuþætti* metið næringarástand* gert meðferðaráætlun í samræmi við áhættumat* notað dýnur og sessur í samræmi við áhættumat* notað sýnilega snúnings- og hagræðingarskema þegar við […]

Lokað hefur verið fyrir skráningu á netinu en hægt er að mæta á Hilton Reykjavík Nordica að morgni 18. okt. og skrá sig á staðnum.

Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica. Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS á næstu dögum. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er Þrýstingssár og varnir. Dagskrá Ráðstefnugjald er: 7.000 kr. fyrir félaga í SUMS 15.000 kr. fyrir utanfélagsmenn 5.000 kr. fyrir nema Þeir sem ekki hafa greitt árgjaldið fyrir árið 2013 þurfa að greiða […]

Við minnum á fræðslufundinn á mánudag, þar sem okkur býðst að hlusta á frábæra fræðimenn á sviði sárameðferðar. Fræðslufundurinn er í samvinnu við Kerecis. Fjallað er um bláæðasár, sykursýkisár, vandamál við krónísk sár, húðvandamál og incontinence. Fylgiskjal: auglýsing. Látið sem flesta vita af þessu – aðgangur ókeypis. Fræðslufundurinn hefst kl 16.15 en aukaaðalfundur SUMS byrjar […]

Samtök um sárameðferð og Kerecis bjóða til fræðslufundar með heimsþekktum fræðimönnum á sviði sárameðferðar, mánudaginn 23. september n.k. Þessir fræðimenn eru ráðgjafar hjá Kerecis, íslensku fyrirtæki sem þróað hefur stoðefni úr fiskroði, ætlað til sárameðferðar og fleira. Fundurinn verður haldinn í Hringsal Landspítala Hringbraut og hefst um leið og auka aðalfundi SUMS lýkur. Við hvetjum […]

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, skipti stjórn SUMS með sér verkum: Guðbjörg Pálsdóttir formaður Ína Kolbrún Ögmundsdóttir varaformaður Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri Vilborg Hafsteinsdóttir ritari Már Kristjánsson meðstjórnandi Varamaður er Lilja Þyri Björnsdóttir sem kemur inn í staðinn fyrir Karl Logason sem gaf ekki kost á sér áfram. Karl hefur setið í stjórn frá stofnun samtakanna. […]

Ársfundur SUMS (aðalfundur og fræðsla) verður verður haldinn í Hringsal Landspítala Hringbraut, miðvikudaginn 13. mars og hefst kl. 16:15. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, verða erindi um sárasogsmeðferð. Að venju verða styrktaraðilar með sýningu á vörum sínum. Sjá nánar í dagskrá (pdf). Vonumst til að sjá ykkur öll og takið með ykkur gesti.

Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir tvo styrki að verðgildi 200 þúsund krónur hvor. Styrkirnir eru veittir verkefni eða rannsókn sem stuðlar að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS. Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Nánari upplýsingar

Lokað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS, þeir sem enn eiga eftir að skrá sig verða að mæta snemma 26. október og skrá sig á staðnum.

Sækja dagskrá

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel, Reykjavík 26. október n.k. Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS á næstu dögum. Verið er að leggja lokahönd á dagskrána og verður hún birt hér á síðunni um leið og hún er tilbúin. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni eru langvinn sár. Meðal annars verður fjallað verður um sérkenni […]

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund, skipti stjórn SUMS með sér verkum: Guðbjörg Pálsdóttir formaður Már Kristjánsson varaformaður Jóna Krisjánsdóttir gjaldkeri Vilborg Hafsteinsdóttir ritari Ína Kolbrún Ögmundsdóttir meðstjórnandi. Varamenn eru, Karl Logason og Halla Fróðadóttir kom inn sem varamaður í stað Bergþóru Karlsdóttur sem gaf ekki kost á sér áfram. Þökkum við Bergþóru kærlega fyrir samstarfið […]

Ársfundur SUMS (aðalfundur og fræðsla) verður verður haldinn í Hringsal Landspítala Hringbraut, miðvikudaginn 21. mars og hefst kl. 16:15. Á ársfundi eru hefbundin aðalfundarstörf og hefur vægi fræðslu verið aukið. Að venju verða styrktaraðilar með sýningu á vörum sínum. Sjá nánar í dagskrá (pdf). Vonumst til að sjá ykkur öll og takið með ykkur gesti.

Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir styrki að verðgildi 200 þúsund krónur hvor. Styrkirnir eru veittir verkefni eða rannsókn sem stuðlar að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS. Umsóknarfrestur er til 21. febrúar n.k. Nánari upplýsingar

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel, Reykjavík 21. október n.k. Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS þriðjudaginn 27. september. Tveir erlendir gestafyrirlesarar koma til okkar en þau eru: Annemarie Brown er hjúkrunarfræðingur sem býr og starfar í Englandi. Annemarie hefur hefur lokið sérnámi í sárahjúkrun og hefur víðtæka reynslu sem sárahjúkrunarfræðingur, bæði í heimahjúkrun […]

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skipti stjórn SUMS með sér verkum. Guðbjörg Pálsdóttir formaður Már Kristjánsson varaformaður Jóna Krisjánsdóttir gjaldkeri Vilborg Hafsteinsdóttir ritari Ína Kolbrún Ögmundsdóttir meðstjórnandi. Þórhildur Sigtryggsdóttir gaf ekki kost á sér áfram og þökkum við henni samstarfið. Ína Kolbrún Ögmundsdóttir kemur ný inn og er hún boðin velkomin í stjórn samtakanna. Varamenn […]

Aðalfundurinn verður haldinn í Hringsal Landspítala Hringbraut, miðvikudaginn 16. mars og hefst kl. 16:15. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða flutt tvö spennandi fræðsluerindi og vörusýningar styrktaraðila. Sjá nánar í dagskrá (pdf) Vonumst til að sjá ykkur öll og takið með ykkur gesti.

Á þorláksmessu færði SUMS sáramiðstöð Landspítala stafræna myndavél að gjöf. Ljósmyndir eru mikilvægar við mat á sárum og við skráningu framvindu. Ljósmyndir af sárum eru einnig hjálplegar sem kennslu- og fræðsluefni. SUMS óskar sáramiðstöð velfarnaðar og vonar að þessi gjöf verði til þess að efla og styrkja starfsemi sáramiðstöðvarinnar enn frekar.Guðbjörg Pálsdóttir sárahjúkrunarfræðingur,hefur umsjón með […]

Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir styrk að verðgildi 200 þúsund krónur. Styrkur er veittur verkefni eða rannsókn sem stuðlar að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmist markmiðum SUMS. Auglýsing um styrk

Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel, Reykjavík 15. október n.k. Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS mánudag 20. september. Gestafyrirlesari er Madeileine Flanagan. Madeleine hefur starfað við Háskólann í Hertfordshire í Englandi síðan 1996 við Faculty of Health & Human Sciences og haft veg og vanda að uppbyggingu og þróun náms í sárameðferð við […]

Fótasáralykill Sáramiðstöðvar LSH sem fjarlægður var 4. mars s.l. vegna breytinga á lyklinum, hefur verið settur inn aftur undir “Fræðsluefni” og hér fyrir neðan. Fótasáralykill

Fyrsti stjórnarfundur eftir aðalfund var haldinn 7. apríl s.l. þar sem stjórnin skipti með sér verkum: Stjórn SUMS: Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Már Kristjánsson, varaformaður Jóna Kristjánsdóttir, gjaldkeri Vilborg Hafsteinsdóttir, ritari Þórhildur Sigtryggsdóttir, meðstjórnandi. Er þetta óbreytt frá síðasta ári. Varamenn eru þau, Bergþóra Karlsdóttir og Karl Logason. Unnur Þormóðsdóttir gaf ekki kost á sér áfram […]

Þeim vandræðum sem við höfum átt með hýsingu heimasíðu SUMS er nú lokið. Búið er að fá íslenskan aðila til að hýsa síðuna og er hún nú hraðvirkari en nokkru sinni áður. Vonandi að hún geti því sinnt hlutverki sínu betur hér eftir.

Aðalfundurinn verður haldinn í Hringsal Landspítala Hringbraut, miðvikudaginn 17. mars og hefst kl. 16:15. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verður kynning á Sáramiðstöð Landspítala og tvö fræðsluerindi. Sjá nánar í dagskrá. Vonumst til að sjá ykkur öll og takið með ykkur gesti.

Fótasáralykill frá Sáramiðstöð Landspítala hefur tímabundið verðið fjarlægður vegna breytinga.

Heimasíða SUMS hefur verið óvirk í nokkurn tíma vegna bilunar hjá hýsingaraðila síðunnar erlendis. Nú er þetta komið í lag. Biðjumst við velvirðingar á þessu og vonum að þessi bilun hafi ekki valdið ykkur óþægindum. Framundan er aðalfundur SUMS sem haldinn verður 17. mars kl. 16:15 í Hringsal Landspítala við Hringbraut. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða […]

Stjórn SUMS kom saman í vor og skipti með sér verkum næsta tímabil. Guðbjörg Pálsdóttir er formaður Már Kristjánsson varaformaður Jóna Kristjánsdóttir gjaldkeri Vilborg Hafsteinsdóttir ritari og Þórhildur Sigtryggsdóttir meðstjórnandi. Varamenn: Karl Logason og Unnur Þormóðsdóttir

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli 25. september n.k. Dagskráin verður heldur viðameiri en venjulega vegna þess að samtökin fagna 5 ára afmæli sínu á þessu ári, en þau voru stofnuð 28. október 2004. Við fáum m.a. til okkar tvo góða gesti, Bo Jörgensen yfirlækni og Prófessor […]

Aðalfundur samtakanna var haldinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. mars s.l. Herborg Ívarsdóttir varaformaður setti fundinn og flutti skýrslu stjórnar. Félagar í SUMS voru 157 í árslok 2008. Már Kristjánsson gjaldkeri lagði fram reikninga stjórnar og standa samtökin vel. Ákveðið var að árgjöld félagsmanna og styrktaraðila skyldu vera óbreytt. Lagabreytingar. Tvær lagabreytingar voru lagðar fram, annars […]

Aðalfundur samtakanna verður haldinn 18. mars n.k. á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi og hefst kl. 16:45. Sjá dagskrá aðalfundar Leiðarvísir að sjúkrahúsinu Best er að ganga inn um nýja aðalinnganginn og niður í kjallara til vinstri. Lagabreytingar Breyting 1 Stjórn SUMS leggur fram tillögu um breytingu á merki (lógó) samtaka um sárameðferð á Íslandi. Núverandi merki […]

Stjórn SUMS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 200.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð. Sótt er um styrkinn hér á heimasíðunni. Sjá hnapp til vinstri, “Umsóknir um styrk” Umsóknarfrestur er til 6. mars og verða styrkþegar kynntir á aðalfundi SUMS […]

Fjórðu ráðstefnu SUMS er lokið og tókst hún mjög vel. Þemað var sykursýkisár og létu gestir vel af þeim fróðleik sem fram kom hjá fyrirlesurum. Flestir fyrirlestrana eru komnir inn á heimasíðuna undir “Fræðsluefni”.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnu SUMS sem haldin verður í Salnum Kópavogi 24. október 2008. Þema ráðstefnunnar er sykursýkisár. Sjá nánar í dagskrá.

Samtök um sárameðferð voru stofnuð fyrir fjórum árum. Markmið samtakanna er að stuðla að aukinni þekkingu á sárgræðslu og sárameðferð, stuðla að samvinnu og samræmingu í meðferð sára í íslensku heilbrigðiskerfi. Skipuleggja og halda ráðstefnur og fræðslufundi um sárameðferð, stuðla að auknum rannsóknum á sviði sárameðferðar á Íslandi og efla samskipti milli félagsins og annarra […]

Aðalfundur SUMS verður haldinn 12. mars n.k. í Hringsal Landspítala (Barnaspítala Hringsins, gengið inn að sunnan). Venjubundin aðalfundarstörf. Flutt tvö fræðsluerindi. Dagskrá aðalfundar SUMS 2008.

Aðalfundur SUMS verður haldinn 12. mars í Hringsal Landspítala við Hringbraut. Nánar auglýst síðar.

Stjórn SUMS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð. Þeir sem áhuga hafa, geta sótt um styrkinn hér á heimasíðunni. Sjá hnapp hér til vinstri. Umsóknarfrestur er til 1. mars og verða styrkþegar kynntir á […]

Netfang SUMS sums@sums-is.org verður lagt niður frá og með 25. nóvember. Stofnað hefur verið pósthólf á gmail og er netfang SUMS sums2004@gmail.com

Þriðju ráðstefnu SUMS er nú lokið. Tæplega 100 manns sóttu ráðstefnuna, fluttir voru mjög áhugaverðir og fræðandi fyrirlestrar, voru gestir mjög ánægðir með fyrirlesarana og fyrirlestrana. Stjórn SUMS þakkar fyrirlesurum þeirra faglega og góða framlag. Eins og á fyrri ráðstefnum verða fyrirlestrarnir settir inn á heimasíðuna undir Fræðsluefni. Það skal tekið fram að eingöngu eru […]

Skráningarfrestur á ráðstefnuna hefur verið framlengdur til 18. október

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnu okkar. Tengill á skráningasíðu er efst til vinstri.

Dagskrá ráðstefnu okkar liggur nú fyrir og opnum við fyrir skráningu í vikunni. Þeir félagar sem eiga eftir að greiða árgjaldið fyrir árið 2007 eru vinsamlega beðnir um að ganga frá greiðslu áður en þeir skrá sig því ekki verður hægt að greiða árgjaldið með þátttökugjaldinu. Vonumst til að sjá ykkur sem flest á spennandi […]

Stjórn SUMS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð. Þeir sem áhuga hafa, geta sótt um styrkinn hér á heimasíðunni. Umsóknarfrestur er til loka september og verða styrkþegar kynntir á ráðstefnu SUMS sem haldin verður […]

Nú er nýlokið sautjándu ráðstefnu EWMA og var hún að þessu sinni haldin í Glasgow Skotlandi.13 íslendingar sóttu ráðstefnuna (þar af 12 hjúkrunarfræðingar)Glasgow skartaði sínu fegursta veðri ráðstefnudagana og höfðu skotar á orði að annað eins veður hefði ekki komið á þessum árstíma í mörg ár, sól og hiti 15 – 18°C.Dagskráin var mjög þétt […]

Stjórn SUMS hefur komið saman eftir aðalfund og skipt með sér verkum: Jóna Kristjánsdóttir formaður Herborg Ívarsdóttir varaformaður Már Kristjánsson gjaldkeri Guðbjörg Pálsdóttir ritari og Karl Logason meðstjórnandi Elín Ólafsdóttir og Hanna Þórarinsdóttir varamenn.

Ráðstefna SUMS verður haldin 19. október 2007 í Salnum Kópavogi. Vinsamlega takið daginn frá. !!

Um 40 manns sóttu aðalfundinn sem haldinn var í Hringsal LSH. 14. mars. Fundarstjóri aðalfundar var Elín H. Laxdal æðaskurðlæknir. Á aðalfundi voru bornar upp tvær lagabreytingar, önnur breytingin snýr að lögum félagsins en hin að merki SumS. Sjá nánar í auglýsingu um aðalfundinn frá 26. febrúar. Báðar lagabreytingar voru samþykktar af fundarmönnum. Að loknum […]

Aðalfundur SumS verður haldinn 14. mars n.k. í Hringsal LSH. Fundurinn hefst kl. 16.15. Sjá [dagskrá aðalfundar](/docs/dagskra_adalfundur_2007.pdf “Dagskrá aðalfundar 2007”).Bornar verða fram tvær lagabreytingar, vinsamlega kynnið ykkur lagabreytingarnar. Sjá [lagabreytingar](/docs/lagabreytingar_2007.pdf “Lagabreytingar fyrir aðalfund 2007”).Að loknum aðalfundi verða flutt tvö fræðsluerindi. Bjarni Torfason hjartaskurðlæknir ætlar að fræða okkur um vaxtarþætti trombocyta og sárameðferð.Hjúkrunarfræðingar á Æðaskurðdeild B-6 […]

Annarri ráðstefnu SumS er lokið og sóttu yfir 100 manns ráðstefnuna að þessu sinni. Erindin voru fjölbreytt og fræðandi, þakkar stjórn SumS fyrirlesurum kærlega fyrir þeirra framlag og ráðstefnugestum fyrir þann mikla áhuga sem þeir sýndu. Einn nýr styrktaraðili bættist í hóp þeirra sem styðja við bakið á sárasamtökunum, en það er Stoð hf. Eru […]

Skjal með dagskrá ráðstefnu

Nú er mánuður í ráðstefnu SumS sem haldin verður 27. október n.k. Búið er að opna fyrir skráningu hér á síðunni efst til vinstri. Dagskráin er í stórum dráttum tilbúin en endanleg dagskrá mun liggja fyrir fljótlega í október. Einn erlendur fyrirlesari verður á ráðstefnunni, Deborah Hofman klínískur sérfræðingur í hjúkrun. Er mikill fengur að […]

Stjórn SumS hefur ákveðið að veita tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð. Þeir sem áhuga hafa, geta sótt um styrkinn hér á heimasíðunni Umsóknarfrestur er til 15. október og verða styrkþegar kynntir á ráðstefnu SumS sem haldin verður […]

Á þingi evrópsku sárasamtakanna (EWMA) sem haldið var í Prag í maí 2006 var vakin athygliá mikilvægi þess að sameina þekkingu og færni heilbrigðisstarfsmanna við greiningu ogmeðferð sára á einn stað. Margvíslegar vísbendingar komu fram á þinginu sem benda tilþess að víða sé pottur brotinn í almennri þekkingu heilbrigðis-starfsmanna á mismunandiorsökum sára og meðhöndlun þeirra.[Sáramóttaka […]

Aðalfundur SumS var haldinn í blíðskaparveðri á Akureyri þann 17. mars s.l. Um 40 manns sóttu aðalfundinn og hlýddu á fræðsluerindi sem flutt voru að loknum aðalfundi. Sjá nánar PDF-skjal

Nú líður að aðalfundi SumS fyrir árið 2006, sem að þessu sinni verður haldinn á Akureyri. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, verða flutt þrjú erindi um sár og sárameðferð. Auglýsing vegna aðalfundar SumS 2006

Á ársfundi dönsku sárasamtakana eru veittir ýmsir styrkir sem einstaklingum sem vinna við sár og sárameðferð gefst kostur á að sækja um. Einnig veitir fyrirtækið 3M heiðursstyrk árlega, en ekki er hægt að sækja um hann, aðeins að vera tilnefndur til. Í úthlutunarnefnd þess styrkjar situr m.a. Finn Gottrup prófessor sem var gestur okkar á […]

Þátttaka á ráðstefnunni sem haldin var s.l. föstudag, fór fram úr björtustu vonum. Þátttakendur voru kringum 150 manns. Stjórn SumS þakkar öllum fundargestum kærlega fyrir þennan mikla áhuga og sést það berlega hve mikil þörf er á fræðslu um sár og sárameðferð. Verður það stjórn SumS hvatning til að halda áfram og gera betur. Í […]

Guðbjörg Pálsdóttir ritari SumS skrifar grein í Sår tímarit dönsku sárasamtakanna um eins árs afmæli íslensku sárasamtakanna.Nú er liðið rúmlega eitt ár frá stofnun SumS, Samtaka um sárameðferð á Íslandi. Viðhéldum góða ráðstefnu á eins árs afmælinu, á Hótel Loftleiðum, þar sem mörg góðerindi voru flutt. Ár frá stofnun SumS

Endanleg dagskrá ráðstefnunnar liggur nú fyrir. Meðal efnis má geta að eftir hádegi verða tveir erlendir fyrirlesarar. Þær koma báðar frá Danmörku og eru: Anette Norden hjúkrunarfræðingur sem fjallar um V.A.C meðferð (Vacuum Assisted Closure) Ulla Moe iðjuþjálfi sem fjallar um þrýstingssár. (frá sjónarhóli iðjuþjálfa)

Ákveðið hefur verið að hafa opið fyrir skráningu á ráðstefnuna til og með 26. október.

Skráningu á SumS ráðstefnuna líkur 15. október. Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig. Látum þetta tækifæri ekki fram hjá okkur fara.

Dagskrá ráðstefnu SumS (pdf skjal) liggur nú fyrir að mestu leyti. Skráning er hafin (sjá efst til vinstri á síðunni) og stendur til og með 15. október. Styrktaraðilar SumS verða á staðnum og kynna sínar vörur. Sjáumst á ráðstefnunni !

Búið er að ákveða dagsetningu næstu ráðstefnu SumS. Verður hún haldin á eins árs afmæli samtakanna 28. október n.k. Félagsmenn takið daginn frá. Dagskrá ráðstefnunnar er í mótun og verður nánar auglýst síðar. Settur verður (…)

Samtök um sárameðferð er orðinn formlegur aðili að EWMA. evrópsku sárasamtökunum. Félagar í aðildarfélögum EWMA fá blaðið þeirra EWMA_JOURNAL frítt !! Blaðið er gefið út tvisvar á ári, vor og haust. Vor blaðið er á leiðinni til okkar og verður sent út til félagsmanna innan skamms. Í blaðinu er m.a. grein um SumS eftir Guðbjörgu […]

Aðalfundur SumS var haldinn þann 15. mars s.l. í Hringsal LSH. Um 40 manns mættu á fundinn. Dagskrá aðalfundar var samkvæmt lögum SumS. Varaformaður bauð gesti velkomna og setti fundinn. Fyrsta mál á dagskrá var kosning fundarstjóra og fundarritara. Stungið var upp á Aðalheiði K. Þórarinsdóttur sem fundarstjóra og Guðbjörgu Pálsdóttur sem fundarritara og var […]

Guðbjörg Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur, skrifaði greinina “Nyt sårselskab i Island” um undirbúning og stofnun SumS sem birtist í tímariti dönsku sárasamtakanna 4. tbl. 2004. Dönsku sárasamtökin gefa blaðið út 4 sinnum á ári.

Á fyrsta fundi stjórnar sem haldinn var 8. desember 2004 skipti stjórn með sér verkum þannig: formaður: Jón Hjaltalín Ólafsson, húðlæknir, kosinn á stofnfundi varaformaður: Jóna Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur gjaldkeri: Karl Logason, æðaskurðlæknir ritari: Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur meðstjórnandi: Aðalheiður K. Þórarinsdóttir, sjúkraþjálfari Í varastjórn: Herborg Ívarsdóttir, hjúkrunarfræðingur Már Kristjánsson, smitsjúkdómalæknir Aðalheiður tilkynnti að hún þyrfti að […]

Þann 28. október 2004 voru loksins stofnuð samtök um sárameðferð, þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Áhugafólk um sárameðferð hafði oft rætt um mikilvægi þess að stofna þverfagleg samtök, en ekkert orðið úr. Samtökin heita “Samtök um sárameðferð á Íslandi” (skammstafað SumS). Á ensku nefnast þau The Icelandic Wound Healing Society (IWHS). Samtökin eru þverfagleg […]

Sigurður Guðmundsson landlæknir setti málþingið og bauð gesti velkomna. Heiðursgestir og fyrirlesarar voru: Henrik Nielsen framkvæmdastjóri evrópsku sárasamtakanna. Finn Gottrup skurðlæknir og professor við Háskólann í Óðinsvéum. Hann er formaður dönsku sárasamtakanna og jafnframt ritari í evrópsku sárasamtökunum. Christine Moffat, hjúkrunarfræðingur og prófessor í London. Fráfarandi formaður evrópsku sárasamtakanna. Kirsten Müller, hjúkrunarfræðingur, varaformaður dönsku sárasamtakanna. […]

Allir sem koma nálægt meðferð sárasjúklinga á Íslandi hafa fundið hversu erfitt getur verið að beina sjúklingi með langvarandi sár í réttan farveg innan heilbrigðiskerfisins. Vel menntað fólk og vel búnar deildir eru fyrir hendi en auka má við kunnáttuna og samræma meðferð.Frétt í Fréttablaðinu október 2004.Heilbrigðisstarfsfólki og þá sérstaklega hjúkrunarfræðingum hefur verið tíðrætt um […]