Sækja um fulla aðild
Full aðild veitir rétt til inngöngu í félagið eiga heilbrigðisstarfsmenn sem hafa áhuga á sárameðferð. Þeir sem eiga hagsmuna að gæta s.s. eigendur eða starfsfólk fyrirtækja sem framleiða eða selja vörur tengdar sárameðferð, öðlast ekki fulla aðild að félaginu en geta fengið aukaaðild. Aðeins heilbrigðisstarfsmenn teljast fullgildir félagsmenn og hafa atkvæðisrétt. Nemar í heilbrigðistengdum greinum eru velkomnir í félagið.
Árgjald er það sama og fyrir aukaaðild, 3.700 kr. og felur í sér afslátt á ráðstefnugjaldi SUMS og aðgang að upplýsingum um viðburði samtakanna. Árlega eru auglýstir verkefna- og rannsóknarstyrkir SUMS sem félagsmenn geta sótt um. Félagar í SUMS fá lægri félagsgjöld í EWMA og geta þar með fengið afslátt af ráðstefnugjöldum þeirra og fleira sem fylgir því að vera félagi í EWMA.