,

Ársfundur SUMS og ný stjórn

Ársfundur SUMS var haldinn 11. mars s.l. Hann var vel sóttur og voru þrjú góð fræðsluerindi flutt ásamt vörukynningum frá styrktaraðilum okkar.

Tveir stjórnarmeðlimir hættu í stjórn í ár en það eru þær Guðbjörg Pálsdóttir sérfræðingur í hjúkrun og Kristín Haraldsdóttir læknir. Guðbjörg hefur verið í stjórn SUMS frá upphafi og er einn af stofnendum SUMS. Við þökkum þeim báðum innilega fyrir þeirra framlag að starfi SUMS sem er ómetanlegt.

Tvær buðu sig fram í stjórn en það eru þær Elísa Jóhannesdóttir læknir og Vigdís Friðriksdóttir sérfræðingur í hjúkrun. Við bjóðum þær velkomnar og hlökkum til samstarfsins.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá ársfundinum ásamt mynd af fráfarandi stjórnarmeðlimum með nýju stjórninni.

Stjórnina skipa því nú

Ingibjörg Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur á Landspítala, formaður SUMS

Elísa Jóhannesdóttir sérnámslæknir á Landspítala

Elva Rún Rúnarsdóttir sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala

Helena Rut Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni Salahverfi

Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala

Vigdís Friðriksdóttir, sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala

Þórgunnur Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á dag-og göngudeild skurðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Hér má sjá Ingibjörgu Guðmundsdóttur formann SUMS með Kristínu Haraldsdóttur og Guðbjörgu Pálsdóttur. Þökkum þeim fyrir vel unnin störf fyrir SUMS.

Hér má sjá fráfarandi stjórn ásamt nýju stjórninni

Frá vinstri: Tómas, Kristín, Vigdís, Elva, Helena, Elísa, Ingibjörg, Guðbjörg og Þórgunnur.

Aðrar myndir frá fundinum