Málþing og stofnfundur
Sigurður Guðmundsson landlæknir setti málþingið og bauð gesti velkomna.
Heiðursgestir og fyrirlesarar voru:
Henrik Nielsen framkvæmdastjóri evrópsku sárasamtakanna.
Finn Gottrup skurðlæknir og professor við Háskólann í Óðinsvéum. Hann er formaður dönsku sárasamtakanna og jafnframt ritari í evrópsku sárasamtökunum.
Christine Moffat, hjúkrunarfræðingur og prófessor í London. Fráfarandi formaður evrópsku sárasamtakanna.
Kirsten Müller, hjúkrunarfræðingur, varaformaður dönsku sárasamtakanna.
Sjá nánar heiti fyrirlestra og dagskrá í Stofnfundur SumS (pdf skjal)
Að loknu málþingi voru sárasamtökin formlega stofnuð og hlutu þau nafnið SumS samtök um sárameðferð . Gestir á málþingi voru um 130 og stofnfélagar 80.
Lög hinna nýju samtaka voru síðan lesin upp og samþykkt. Merki samtakanna kynnt og samþykkt.
Tilnefnd til stjórnarsetu í SumS eru:
- Aðalheiður K. Þórarinsdóttir, sjúkraþjálfari
- Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Herborg Ívarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Jón Hjaltalín Ólafsson, húðlæknir
- Jóna Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Karl Logason, æðaskurðlæknir
- Már Kristjánsson, smitsjúkdómalæknir
Formaður SumS er kjörinn Jón Hjaltalín Ólafsson húðlæknir